Mitt svæði
Baby �?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1758 dögum
22.01.2008 21:17:29 / Katrín

æla.is

Jæja nú er mér allri lokið!!

Stefán Einar er búinn að vera ómögulegur síðan á fimmtudaginn og í dag (þriðjudag) er hann bara lítið skárri en í síðustu viku.. hann ælir bara, og svo er hann fínn í 10-20 tíma og ælir aftur! Hvað á maður að halda!! Eru gubbur svona lengi að ganga yfir eða ??

Annars var hann duglegur í dag, hann stóð upp.. fyrsta skipti sem hann stendur sjálfur upp :D Rosa duglegur :D :D

Svo fór ég með hann í klippingu hehe.. ég var komin með nóg af síðum lokkum hér og þar þannig að honum var skellt í klipp! Mér finnst hann rosa flottur ;)

Skólinn er í skít! nenni ekki að segja meira um það.

kv. Katrín


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 00:33:41 / Katrín

nýtt...

Jæja fallega fólk!

Ég er loksins komin með netið heim, búið að vera þvílíkt bras. Og svo var tölvan mín líka biluð, bilaði sko daginn áður en skólinn byrjaði.. mjög hentugt hehe.. en þeir hjá tölvuþjónustunni redduðu því fyrir mig :D

Netið var brjálað bras, eyddi tveimur tímum i að fixa það í dag, sem betur fer rétt hafðist það annars hefði ég sennilega tapað geðinu alveg í dag. Ég var nefnilega mjög nálægt því að tapa geðinu í morgunn.. pirraði mig á öllu, var samt held ég mest pirruð yfir því að vera blaut í fæturnar í skólanum hehe :)

Dagmömmukjaftæðið er ekki komið á hreint.. segi kannski frá því á morgunn eftir þennan umtalaða blessaða fund sem við höfum beðið eftir í 2 vikur :D

Sáuð þið Kastljósið í gær (14.jan)?? Þar voru systur Snædís og Áslaug minnir mig og þær eru 11 og 13 ára gamlar.. Þær lifa því miður við sjúkdóm, hrörnunarsjúkdóm og það veit enginn af hverju þær eru með þetta, halda að það sé gena tengt en vita ekkert hvernig hann virkar eða hvað hann gerir.. Hrikalegt alveg.. Allavega, eldri systirin var í viðtalið við Ragnhildi Steinunni og þvílíkur snillingur, hún var að reyna að kenna fólki lífsins reglur, hvenær hlustar maður ef ekki á 13 ára stelpu sem er föst í hjólastól og notar súrefnisvél á næturnar. Hún fékk mig alveg til þess að þakka fyrir hvað ég hef það gott. Og svo minntist hún líka á það að Alþingismenn hafi verið að kaupa sér ný húsgögn hehe.. þið verðið bara að flétta þessu upp á ruv.is. Fyrirmyndar stúlkur sem allir geta lært af!!

En út í fréttir af mér og mínum:

  • TK er byrjuð í Borgarnesskóla eða eins og Ella frænka segir að krakkarnir í hennar skóla segi Borgarnesarskóla :S hmm..
  • Gengur rosa vel, kemur mjög sjaldan heim úr skólanum og ef hún kemur þá er hún á leið út eða einhver á leið til hennar.. sem sagt alltaf að leika við einhvern :D
  • SE er kominn með 2 tennur, fyrri 15.des og síðari 11.jan. svo byrjaði hann líka að skríða, gerði það þegar ég var í skólanum (dagur 2)(skil ekki af hverju hann gerði það ekki bara áður en ég byrjaði aftur í skólanum hehe)
  • Hann lærði líka að klappa og gefa five.. önnur kennsla gengur ekki nógu vel en við erum satm að reyna hehe.. hann hlær bara að okkur þegar við reynum að kenna honum eitthvað.
  • Litli frændi minn var skírður á sunnudaginn, fékk nafnið Jóhann Mikael.. mjög falleg og vel valið á sæta frændann minn :D :D

En Viðja Sóllilja er að koma í pass til okkar SE á morgunn :D get ekki beðið.. er að spá í að fara að sofa.. mér líður eins og klukkan sé mikið meira en hálf 1, sem er bara gott :D

Knús á línuna!
Bíð eftir fleiri óléttutilkynningum, það eru ansi margir að koma með kríli á þessu ári og ég bíð spennt :D :D

kv. Katrín


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 02:11:41 / Katrín

Gleðileg jólin!!

Verð bara aðeins að monta mig og sýna ykkur hvað ég er ógeðslega rík !! :)

 Við saman!

 Ekkert smá yndisleg og falleg börn sem ég á :D :D

 Svo verð ég að setja inn eina af Bebbanum mínum.. hann er einfaldlega svo heillandi ;)

bebbalingurinn minn með bindi <img src=" title="bebbalingurinn minn með bindi :)" width="480" height="640" />

hver getur sagt nei við svona dreng!!

Gleðileg jól og farsælt komandi ár elskurnar (ef það les þetta einhver ennþá ;))

knús

Katrín!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 23:07:35 / Katrín

vá flottar myndir!!

Viðja sæta músin mín!!

Flottustu systurnar :)

Viðja fór víst bara á kostum :) svo sæt !!

 Biggi vinur hennar Andreu var að taka þessar myndir.. ef ykkur vantar myndatöku þá get ég látið ykkur hafa nr. hjá honum ;)

 fæ svo vonandi myndirnar af mínum börnum fljótlega ;) Monta mig eflaust líka af þeim hehe :)

 

ohh þær virka víst ekki :( en þær eru samt voða flottar hehe

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 11:05:46 / Katrín

lítlill frændi!!!

þetta er litli sæti frændi minn sem fæddist í nótt!!

 

Elsku besta litla systa og Gunni minn !! Til hamingju með hann.. hlakka ofsa mikið til að sjá hann og knúsa :D

Hann var 17.5 merkur og 52.5 cm.. frekar stór miðað við að hann átti að fæðast á morgunn!!

eigið góðan dag!

kv. Katrín


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.11.2007 23:34:53 / Katrín

Grímubúningar!

Auglýsi hér með eftir grímubúningum!!

Við erum að fara í afmæli.. grímubúningar nauðsynlegir!!

Allar hugmyndir vel þegnar þó svo að þið eigið ekki búninginn til  :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 14:57:48 / Katrín

Thelma svaf á gólfinu

Já.. það var aldeilis sjón að sjá hana Thelmu Karen þegar við Stefán Einar vöktum hana í morgunn heheh... Hún var sofandi á gólfinu.. ég gerði þetta iðulega þegar ég var yngri.. laumaði mér undir skrifborð og svaf þar hehe.. skil hana svo sem :) Tók smá myndir af athæfinu...

hmm.. hvar er Thelma

hmmm.. hvar er Thelma Karen besta systir mín!! Er hún týnd??

Stefán Einar að leita af Thelmu Karen

Best að leita af systir sinni...

Thelma Karen

Þarna var hún.. skellihlæjandi!!

Brósi að kíkja á systu

HAHA fundin!!

Þau eru náttúrulega bara sætust :) og það er alveg yndislegt að fylgjast með Stefáni Einari þegar hann er að fylgjast með systir sinni.. hún þarf ekki að gera neitt þá er hann farinn að hlæja :D Það fer nú stundum í taugarnar á litlu gelgjunni en yndislegt samt sem áður :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 12:49:35 / Katrín

fréttirnar!!

hmm furðulegt!!

það er einhver stelpa í hádegisviðtalinu á stöð 2, held hún sé formkona femínistafélagsins, ein setning sem hún sagði fer í taugarnar á mér!!

Skipting kynjana hefst þegar þau fæðast, þá er sagt um leið og þau fæðast: það var strákur eða það var stelpa... En ekki hvað.. vá hvað ég væri til í að vera viðstödd fæðinguna hjá henni!! Hún vill greinilega ekki fá að vita kynið á sínu barni fyrr en viku eftir fæðingu, eða bara ekkert fá að vita það ;) hvað ætli hún skíri þá barnið sitt hehe.. man ekki eftir neinu nafni sem gæti verið bæði á stelpu og strák. Henni er kannski sama þó svo að stelpan hennar beri stráka nafn eða öfugt :)

Þetta finnst mér ekki vera eitthvað til að setja út á!! Við erum ólík.. við erum ekki af sama kyni þó svo að ég sé sammála því að það sé ósanngjarnt að konur fái minni laun og eitthvað þá finnst mér ekki meika sens að það megi ekki segja hvors kyns barnið er þegar það fæðist!!

jæja segið nú hvað ykkur finnst :)

læt eina fleyga setningu sem ég las í heimspekisögunni fylgja.. góðar stundir!

Við týnum hlut þegar okkur fellur hann ekki lengur í geð eða þegar slettist upp á vináttuna við gefanda hlutarins !!


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 15:57:33 / Katrín

hálfsárs strákur og hálf mús

er eitthvað samhengi í því að stráksinn minn er hálfs-árs í dag og að ég hitti hálfa mús hérna beint fyrir utan útidyrahurðina hjá mér!!!

Hér eru myndir af þessum tveimur atburðum: 

hálfs árs stráksi

Stefán Einar hálfs árs.. tekið í morgunn!! (23.okt).

hálfa músin!

Hálfa músin.. liggur hérna á ganginum fyrir utan hjá okkur!!! ógeð!!!

Svo tók ég myndir af Thelmu Karen í morgunn þegar hún var að fara í skólann og náði einni svona svakalega fínni.. verð bara að leyfa henni að fljóta með :)

Thelman mín besta

Litla/stóra sætasta stelpan mín!! mylguð á leið í skólann !!

Til gamans má geta að ég hafði fyrir því að setja þessa snúða í hárið á henni en þegar hún kom heim úr skólanum þá sagði hún mér það að hún hefði tekið þá úr áður en hún að rútunni.. vildi ekki að krakkarnir í skólanum sæju hana svona.. þau eru nefnilega vön henni með slegið hár!!! AF hverju var hún þá að biðja um snúða !! heheheh

jæja farin að baka.. ble


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 23:07:17 / Katrín

fleiri hugleiðingar hehe

Meira sem ég hef verið að hugsa... steikt !!

  • Stunda kvensjúkdómalæknar one night stand???

 

  • Þeir sem hafa lær hárgreiðslu/klippa hár.. dæma þeir mann eftir hárinu??

 

  • Eiga hjónaráðgjafar aldrei við vandamál að stríða í bandinu??

 

  • Eins og flestir vita þá eignaðist ég strák í apríl, er það þannig með allar mömmu að þær horfa meira á andstætt kyn við sitt eigið.. ég sem sagt dáist meira af litlu stelpum heldur en strákum.. er kannski meira að bera aðra stráka saman við Stefán Einar.

 

  • Þið sem strauið öll föt.. finnst ykkur ég vera í krumpuðum fötum, já eða börnin mín :)

jæja læt þetta duga.. var þó búin að fá svar við einni spurningu síðast síðast og svarið við henni kemur hér :

spurningin var sem sagt sú af hverju er ekki Y í systkIn?
svar: Á árum áður er talið að það hafi verið systgin, samanber feðgin, mæðgin. Tilgátan er byggð á málsögulegum lögmálum... hmmm.. glatað samt !!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 21:46:02 / Katrín

ýmislegt að spá!!

Oki.. ég veit að þetta er kannski svolítið steikt en læt það samt flakka :)

  • Af hverju er rennilásinn á karlmannspeysum ekki hægra meginn eins og á kvenmannspeysum??
  • Af hverju er ekki Y í systkin... þegar það er Y í kyn???

æi man ekki meira.. hehe brjóstaþoka :S

Nýjar myndir og nýtt útlit á barnalandi :D

 

Later.....


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 02:57:56 / Katrín

tjáning

Jæja það er smá sem mér liggur á hjarta í dag :) nótt kannski hehe

ohh ég man ekkert..

  • Ég var að hlusta á útvarpið um daginn, já ég geri það ekki daglega, og það var auglýsing frá Herra Hafnarfirði!, nema í auglýsingunni var eitthvað verið að tala um jakkaföt, allt í góðu með það, en svo segir kallinn allt í einu: fer og neglir kellingar!!! Hvað er málið með það??? Dóttir mín, 7 ára, var með mér og ég hef ekki mikla löngun í að útskýra þetta fyrir henni!!! Og svo ykkur detti það ekki í hug þá var þetta ekki að kvöldi til!!

 

  • Önnur auglýsing sem fer mjög í taugarnar á mér, og reyndar Thelmu Karen líka, og hún nefndi það af fyrra bragði. Það er sólbaðstofu auglýsing, held hún heiti Sól101, og í auglýsingunni segir: sólbaðstofa fallega fólksins, Thelma er alveg viss um að forsetinn ráði hverjir séu fallegir og megi nota þessa sólbaðstofu hehe.. en þetta finnst mér óþarfa markaðsetning og mig langar EKKERT í ljós á þessari stofu.

 

  • Það síðasta sem ég man eftir og ætla að blogga um er ferðin okkar stelpnanna á Eldsmiðjuna! Þetta VAR uppáhaldsstaðurinn minn.. já VAR!!.. við fórum þangað 5 eða 6 saman, pöntuðum okkur allar sitthvora pizzuna og gos, nema ég og Emman mín pöntum okkur hálfmána, þegar maturinn kemur er okkar Emmu vitlaust og stelpan tekur þetta aftur og sp. hvernig þetta hafi átt að vera og við tjáum okkur um það, hún fer og við fáum aftur mat eftir smá stund, þurftum ekkert að bíða lengi eða neitt :) En svo þegar ég byrja að gæða mér á matnum þá er það aftur vitlaust!!! Hvað er málið með það.. það er ekki eins og ég sé með einhverjar rosalegar sérþarfir.. ég borða bara pepperoni!! Ég sagði gellunni að ég væri bara hætt við þetta og vildi ekki fá mat aftur, enda stelpurnar búnar að borða!!..
    Svo förum við niður að borga og segjum frá þessum endurteknu mistökum, gaurinn lætur okkur að sjálfsögðu ekki borga fyrir matinn sem við fengum ekki en hann lét okkur borga fyrir gos!!! ÉG fór sem sagt á eldsmiðjuna og keypti mér kók!!! Er eitthvað að??? Emma reyndar borgaði kókið en mér hefði alveg þótt lágmark að fá það frítt þar sem ég fór svengri þegar ég fór út heldur en þegar ég gekk inn... og ég þarf varla að taka það fram að ég fer ekki sjálfviljug aftur á Eldsmiðjuna!!!!!

Fyrir utan þetta kvart þá er bara allt rosa fínt að frétta! Við héldum surprise party fyrir Fannar bróðir á föstudaginn og það heppnaðist alveg svakalega vel.. held hann hafi ekki haft hugmynd um þetta :D

Börnin mín er bara best og sætust :D og það eru myndir af þeim inn á barnalandssíðunni þeirra :)

kiss og knús

kreist og kram

Verið góð við hvert annað!!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.09.2007 17:51:40 / Katrín

litla músin mín

varð bara að setja þessa mynd hérna.. hversu sætur getur maður verið!!!

Thelma myndast því miður ekki nógu vel..skil ekki alveg hvað er málið með hana.. hér kemur sýnishorn :S Hjálp!! ef einhver kann ráð við þessu!!!

hún drepur mig ef hún sér þetta!!

þetta er í alvöru ekki grín.. það er bara jólin ef ég næ mynd af henni með opin augu!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 01:48:14 / Katrín

vá dauða síða!!

Ætli þetta sé Randver???

mér finnst þetta fyrirbæri eiginlega ógeðslegra en mús!!!

En fallegu börnin mín eru með síðuna sína á barnalandi.. fullt af myndum :D

Emma!! Ég sakna þín !!

kv. K


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 22:06:44 / Katrín

Makaspakarakadjamm

Jæja þá er komin tími á nýja færslu :D

Ég er að spá í að gera smá myndablogg.. tók nokkrar myndir á makadjamminu sem var á föstudaginn :D

 

Við að fara í boðið... veit ekki alveg hvar ég náði í þennan gaur hehehe

Adam og Steini að búa til fyrsta drykk kvöldsins :D

 

Lúkkar vel :haha: 

 

Dagbjört, Ólöf og Ægir að smakka á drykknum..

 

Himmi og Dagbjört  :D 

 

Hann er nú voða sætur.. og greinilegt að Adam finnst það líka :haha:

Það var voða fjör á þessu djammi :D Allir voða hressir og ég býst við að flestir hafi verið svipað þunnir og Steini hehehe.. þetta var líka ekkert smá bland af drykkjum...sp. um sleppa þessum leik næst heheheheh :haha:

Takk fyrir kvöldið :D

annars er allt gott að frétta.. Danskir dagar næstu helgi.. endilega allir að kíkja við á Skúlagötunni ef þið farið á danska. :haha:

kv. K 


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4